Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur





Innskráning viðskiptavina
Notendanafn:

Lykilorð:



01. júlí 2006

Hreyfill fær heimild til að hafa samræmdan taxta

Í kjölfar ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2006 frá 7. febrúar sl. um afnám hámarkstaxta leigubifreiða, sem staðfest var með úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála nr. 2/2006 frá 18. apríl sl., sótti leigubifreiðastöðin Heyfill svf um heimild til að hafa samræmdan hámarkstaxta fyrir félagsmenn sína. Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 15/2006 frá 24. apríl sl. var gildistöku fyrri ákvörðunar frestað til 1. júlí 2006. Þann 30. júní 2006, var birt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 23/2006 þar sem orðið er við ósk leigubifreiðastöðvarinnar Hreyfils svf. um undanþágu til þess að gefa út hámarksökutaxta fyrir félagsmenn Hreyfils.