Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur





Innskráning viðskiptavina
Notendanafn:

Lykilorð:



12. janúar 2007

Taxi má aka á rauðu

Samkvæmt auglýsingu í Stjórnartíðindum 10.1.2007 er leigubifreiðum nú heimilt að aka á rauðlitaðri sérakrein á Miklubraut, sem áður hafði einungis verið heimilað almenningsvögnum.
Þessi ráðstöfun er til þess fallin að hvetja fólk til að nota sér almennar samgöngur, frekar en að fylla göturnar af einkabílum með tilheyrandi öngþveiti. Jafnframt má líta á þetta sem viðurkenningu borgaryfirvalda á því að leigubílar séu í raun hluti af samgöngukerfi borgarinnar og taki þátt í að tryggja bættar samgöngur borgaranna.

Auglýsing Stjórnartíðinda er birt hér:

Nr. 1169 20. desember 2006

AUGLÝSING

um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að  fengnum tillögum framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn í Reykjavík fallist á að heimila akstur leigubifreiða á rauðlitaðri sérakrein á Miklubraut, frá aðrein að bensínstöð austan Kringlumýrarbrautar að stað um 150 metra vestan Stakkahlíðar. Áður hafði heimildin aðeins tekið til aksturs almenningsvagna.

Heimild þessi er táknuð með umferðarmerkinu G04.21.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn í Reykjavík, 20. desember 2006.
Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri.

B-deild – Útgáfud.: 10. janúar 2007





ferðaskipuleggjandiViðurkenning Creditinfo 2010     Viðurkenning Creditinfo 2011   Meet in Reykjavik