Næstu 5 árin munu Hreyfill og Krabbameinsfélagið eiga samstarf um kynningu og fjáröflun í október og nóvember hvert ár.
Í þeim mánuðum munu taxaljósin hjá Hreyfli skipta úr hinum hefðbundna gula lit í bleikan. En það er einkennislitur árveknisátaks um brjóstakrabbamein. Jafnframt mun Bleika slaufan birtast í stað bókstafsins X í orðinu TAXI í ljósinu. Snyrtivörufyrirtækið Estée Lauder átti frumkvæði að Bleiku slaufunni, sem síðan hefur birst í ýmsri mynd og nú í þessu formi.
Um er að ræða algjöra nýjungu í merkingu leigubíla, og munu bleiku ljósin á toppi leigubílanna væntanlega vekja athygli bæði hér á landi sem erlendis.
Bleiku ljósakúplarnir eru í eigu Krabbameinsfélagsins og munu einungis fáanlegir á SPLITHOFF taxamerki framleidd hjá K.U.K.T. í Þýskalandi. Múlaradíó ehf. er umboðsaðili fyrir merkin.
Að auki bjóðast bílstjórar Hreyfils til að taka að sér á tímabilinu, að selja bleiku slaufuna í bílum sínum fyrir Krabbameinsfélagið. Hreyfill verður jafnframt beinn þátttakandi að fjáröflun Krabbameinsfélagsins.
Það er trú þeirra sem að þessu samstarfi standa, að þetta vekji athygli, og hvetji einnig aðra til styrkja Krabbameinsfélagið í rannsóknum brjóstakrabbameins. Jafnframt verði þetta til að hvetja konur til að fara í skoðun.
Reykjavík, september 2007
Stjórn Hreyfils.