Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur





Innskráning viðskiptavina
Notendanafn:

Lykilorð:



28. febrúar 2011

Viðurkenning Creditinfo

Creditinfo hefur valið Hreyfil svf sem eitt af þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki með bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum í Hlutafélagaskrá, voru 177 sem uppfylltu skilyrði Creditinfo fyrir viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki árið 2010.

Voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurfti að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.

Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri.

Við hjá Hreyfli þökkum kærlega fyrir viðurkenninguna.

Viðurkenning Creditinfo





ferðaskipuleggjandiViðurkenning Creditinfo 2010     Viðurkenning Creditinfo 2011   Meet in Reykjavik