Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur





+ Ferð 3b

Gróðurhúsið Ísland

Reykjavík – Hveragerði – Reykjavík

Það er heillaráð að staldra við á Kambabrún á leið til Hveragerðis og líta þar hið góða útsýni til Vestmannaeyja. Í góðu skyggni má jafnvel sjá Surtsey. Hverir setja mjög svip sinn á Hveragerði og ber staðurinn nafn sitt af þeim. Sundlaugin í Hveragerði er mjög góð og státar af náttúrulegu gufubaði. Fjölmargar gróðrarstöðvar eru í bænum þar sem ræktaðir eru suðrænir ávextir og blóm.

Áætlaður ferðatími er 3 klst.