Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur





+ Ferð 3c

Sögulegt Ísland

Reykjavík – Þingvellir – Reykjavík

Ferð í þjóðgarðinn á Þingvöllum, sögufrægasta staðar á Íslandi þar sem Alþingi var stofnað árið 930. Almannagjá skoðuð og gengið upp á brún hennar, en þaðan er ákaflega fallegt útsýni yfir þjóðgarðinn og stærsta vatn íslands, Þingvallavatn. Vatnið er sérstakt fyrir margra hluta sakir og meðal annars lifa í því átta fiskategundir. Vert er að skoða Drekkingarhyl, djúpan hyl þar sem Öxará fellur í fossi fram af klettunum, hylur þessi var áður fyrr notaður við aftökur. Einnig Peningagjá sem full er af vatni, eins tær og hún er djúp og köld.

Áætlaður tími er 3 klst.