Draumaland vatnsins
Reykjavík – Bláa lónið – Reykjavík
Bláa lónið er skammt frá fiskibænum Grindavík á Reykjanesskaga suðvestanverðum. Bláa lónið er einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Það er myndað af vatni frá nálægri hitaveitu á Svartsengi. Vatnið er heitt, ríkt af efnum sem sögð eru hafa lækningamátt við psoriasis og ýmsum húðsjúkdómum og er frábær sundstaður. Veitingahús og hótel eru á staðnum.
Ferðin er 3 klst á lengd. Athugið að aðgangseyrir að Bláa Lóninu er ekki innifalinn.


