Hreyfill sér um þjónustu við Ferðaþjónustu fatlaðra í þeim tilfellum sem Ferðaþjónustan kemst ekki yfir að afgreiða með eigin bílum. Reyndar eru ávallt nokkrir bílar frá Hreyfli fastir í þeirri þjónustu alla virka daga.
Hreyfill sinnir jafnframt fötluðum beint ef þeir kjósa að panta bíl eins og hver annar einstaklingur, eða ekki næst að nýta sér Ferðaþjónustu fatlaðra. Í sumum tilfellum þarf sérútbúna hjólastólabíla, og hefur Hreyfill nokkra slíka bíla í þjónustu.
Alltaf er reynt að bregðast við slíkum pöntunum með sama hraða og hefðbundnum pöntunum, en vegna þess hve fáir slíkir bílar eru getur stundum þurft að bíða nokkuð.

