Reykjavík til Keflavíkurflugvallar

Athugið ! Verðin gilda aðeins frá einum brottfararstað til flugstöðvar með engri viðkomu. Ef viðkomustaðir eru fleiri er hægt að bæta þeim við gegn 4000 kr gjaldi fyrir hvern auka viðkomustað.

Fast verð miðast eingöngu við greiðslu með peningum, debetkortum eða kreditkortum. Fast verð gildir ekki þegar um reikningsviðskipti er að ræða.

Stórhátíðargjald er helgidagataxti með 35% álagi og gildir á eftirfarandi dögum:

Frá miðnætti til miðnættis, föstudaginn langa, páskadag og 17 júní. Aðfangadag til miðnættis jóladag. Gamlársdag til miðnættis á nýársdag.

Þægilegur kostur fyrir farþega við brottför. Minni farangursburður, engin bið eftir áætlunarbílum.