
Svona byrjarðu:
- Auðveld innskráning: Þú skráir þig inn með símanúmerinu þínu á örskotsstundu.
- Staðsetning og tilkynningar: Til að appið virki sem skyldi þarf að leyfa aðgang að staðsetningu og virkja tilkynningar (notifications). Þannig getum við fundið þig fljótt og látið þig vita um leið og bíllinn leggur af stað og þegar hann er kominn á staðinn.
Helstu kostir appsins:
- Sveigjanlegar greiðslur: Þú getur vistað greiðslukort í appinu eða notað Apple Pay og Google Pay fyrir fljótlegar og öruggar greiðslur.
- Bókaðu fyrirfram: Þarftu bíl á ákveðnum tíma? Þú getur pantað með allt að viku fyrirvara.
- Fylgdu bílnum í rauntíma: Sjáðu hvar bíllinn þinn er staddur á kortinu og fylgstu með stöðu pöntunarinnar frá upphafi til enda.
- Einfaldar pantanir: Vistaðu þín uppáhalds heimilisföng (t.d. heima eða vinnu) til að bóka bíl enn hraðar næst.
- Fullt yfirlit: Þú getur skoðað ferðasöguna þína aftur í tímann, nálgast kvittanir og fengið þær sendar beint í tölvupóstinn þinn.
Við viljum heyra í þér!
Við erum stöðugt að vinna í að gera appið enn betra. Ef þú ert með ábendingar eða tillögur að endurbótum, endilega sendu okkur póst á vignir@hreyfill.is.

